Landsliðin fyrir Norður Evrópumót hafa verið valin
Landsliðsþjálfarar í áhaldafimleikum hafa valið fulltrúa í landslið Íslands til að keppa á Norður Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Færeyjum 21.-22. október næstkomandi. Gerpla er stolt af fulltrúum sínum í landsliðinu en alls á félagið átta iðkendur. Gerpla óskar öllum þessu glæsilegu iðkendum alls hins besta í undirbúningnum.
Þess ber að geta að Eyþór, Agnes og Valgarð eru á leiðinni á Heimsmeistaramót á miðvikudaginn en þau munu keppa í Montreal fyrir hönd Íslands. Við óskum þeim góðs gengis á mótinu sem verður haldið 2.-8.október.
Hér má sjá valið fyrir Norður Evrópumótið:
NEM landslið karla:
Arnþór Daði Jónasson, Gerplu
Valgarð Reinhardsson, Gerplu
Jón Sigurður Gunnarsson, Ármanni
Eyþór Örn Baldursson, Gerplu
Martin Bjarni Guðmundsson, Gerplu
Varamenn: Stefán Ingvarsson, Björk og Guðjón Bjarki Hildarson, Gerplu.
NEM landslið kvenna:
Agnes Suto-Tuuha, Gerplu
Dominiqua Alma Belányi, Ármanni
Irina Sazonova, Ármanni
Sigríður Hrönn Bergþórsdóttir, Björk
Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerplu
Varamenn: Vigdís Pálmadóttir, Björk og Sonja Margrét Ólafsdóttir, Gerplu