fbpx

Garpamót 2021

Helgina 7.-8. maí fór fram Garpamót Gerplu í Versölum. Á mótinu kepptu iðkendur úr grunn- og framhaldshópum. Garpamót er liður í uppbyggingu á okkar yngstu iðkendum en á mótinu læra iðkendur að koma fram með þær æfingar sem þau hafa æft í vetur. Fyrir þátttöku á mótinu fengu iðkendur verðlaunapening og viðurkenningaskjal.

Ánægjulegt var að einn foreldri/forráðamaður gat fylgt hverju barni sem áhorfandi. Tæplega 390 stúlkur og drengir tóku þátt í mótinu.

Keppt var í 8., 7. og 6.þrepi létt í drengjaflokki, í stúlknaflokki var keppt í 9., 8., 7. og 6. þrepi. Börnin stóðu sig frábærlega og var mikil ánægja með mótið.

Myndir af hópunum eru inná facebook-síðu Gerplu -> facebook.com/ithrottafelagidgerpla

Áfram Gerpla!

You may also like...