fbpx

Æfingagjöld

Starfsemi Gerplu vorönn 2024

ATH. Ganga þarf frá æfingagjöldum í janúar til að að frístundastyrkur verði orðinn virkur fyrir árið 2024.

Æfingataflan birtist inná sportabler eftir skráningu. Ef ykkur vantar upplýsingar um æfingatíma fyrirfram er best að senda á viðkomandi deildarstjóra. 

Vorönn hefst frá 3.janúar í keppnisdeildum en 6.janúar í öðrum deildum. Keppnisdeildir æfa til 28.júní en aðrar deildir til 1.júní. Tímabil sést á skráningarsíðu. Æfingagjöld vorannar eru alltaf hærri en á haustönn þar sem önnin er amk 5 vikum lengri og í einhverjum tilvikum 8 vikum lengri. 

Greiðsla

Æfingagjöld eru að hækka um 3% á milli anna til að standa straum af launahækkunum sem komu til vorið 2023 og þeirra sem verða á vorönn 2024. 

Verðskrá haust 2024

Skilmálar æfingagjalda

Til þess að plássið sem úthlutað hefur verið sé tryggt þá þarf að ganga frá greiðslu æfingagjalda við skráningu. Ganga þarf frá greiðslu æfingagjalda á greiðslusíðu Gerplu. Ef iðkandi hefur ekki áhuga á að halda plássinu sínu þarf að senda formlega uppsögn á hildur.g@gerpla.is sem og á viðkomandi deildarstjóra og er það á ábyrgð forráðamanna. Það þarf að gerast áður en önnin hefst.  Æfingagjöld eru ekki endurgreidd ef iðkandi hættir, nema vegna langvarandi veikinda eða meiðsla. Þá þarf að skila inn læknisvottorði á skrifstofu Gerplu. 

Mótagjöld keppnishópa og annar kostnaður vegna móta eru ekki innifalin í æfingagjöldum. 

Inni á greiðslusíðu Gerplu er hægt er að greiða með greiðslukorti. Hægt er að skipta niður í allt að sex greiðslur á haustönn og sex greiðslur á vorönn. Á greiðsluseðlum bætast við greiðslu og umsýslugjöld og við greiðsludrefingu á kreditkort bætast við 3.5% þóknun. Verðskrá er að finna hér í tengli að ofan.

Ef ekki er gengið frá æfingagjöldum fyrir tilsetta dagsetningu hér að ofan áskilur Gerpla sér rétt til að setja æfingagjöldin á einn greiðsluseðil og bætast þá við seðilgjald og  annar umsýslunarkostnaður 1500krónur ef bakfæra þarf reikninginn.

Frístundastyrkir  – Endurnýjast í kerfinu í upphafi árs

Hægt er að nýta frístundastyrk sveitarfélaganna til lækkunar á æfingagjöldum.
Vinsamlegast hakið við í viðeigandi reit í greiðsluferlinu. Æfingagjöldin lækka þá sjálfkrafa um leið. 

Skref 1 – Velja hvaða iðkanda þú ert að kaupa þjónustuna fyrir ef það er ekki búið að forskrá iðkandann í námskeið fyrirfram.  ATH gætið að því að rétt þjónusta sé valin

Skref 2 – Ef önnur þjónusta hefur verið keypt sem fellur undir skilmála systkinaafsláttar kemur hann í skrefi 2 í kaupferli.

Skref 3 – Í þessu skrefi velur þú hvort þú viljir nota frístundastyrk eða ekki.  ATH þessi möguleiki kemur ekki upp ef þjónustan sem er til sölu býður ekki upp á frístundastyrk.

Skref 4 –  Í skrefi 4 sérðu hvað þú átt mikinn frístundastyrk inni og í línunni fyrir neðan velur þú þá upphæð sem þú vilt ráðstafa. Þá tengir kerfið þig við island.is og þar skráir þú þig inn til að geta nýtt frístundastyrkinn.

Skref 5 –  Hérna býður félagið upp á greiðsludreifingu (ef við á).

Skref 6 – Hérna fyllir þú inn kortaupplýsingar. Val um kredit-/ debit kort eða greiðsluseðil.

Hægra meginn í kaupferlinu er svo kvittun sem þú sérð hvernig upphæðin reiknast eftir notkun á frístundastyrk, systkinaafslætti og greiðsludreifingu.

Afsláttur

Systkinaafsláttur er 10% sem reiknast á meðaltal heildaræfingargjalds systkina. Dæmi barn 1 – námskeið kostar 50.000kr   barn 2 – námskeið kostar 40.000kr. Meðaltalið er 45.000kr og reiknar afslátturinn af þeirri upphæð. Afslátturinn reiknast sjálfkrafa við skráningu en afslátturinn kemur fram við greiðslu á öllum iðkendum eftir þann fyrsta. Þegar greitt er fyrir fyrsta barn reiknast enginn afsláttur en þegar greitt er fyrir næsta reiknast afslátturinn á meðaltal æfingagjalda barns eitt og tvö. Sex vikum eftir að önnin hefst dettur systkinaafslátturinn út úr kerfinu.