AÐALFUNDUR FORELDRARÁÐS GERPLU 2018 FUNDARBOÐ
Kæru foreldrar iðkenda í keppnishópum Gerplu.
Aðalfundur foreldraráðs Gerplu verður haldinn fimmtudaginn 4.október kl. 20.00 á 2. hæð í húsnæði félagsins að Versölum.
Á fundinum verður farið stuttlega yfir hlutverk foreldraráðs og starf síðasta árs sem og það sem framundan er.
Enn fremur þarf að afgreiða eftirfarandi atriði:
- Kosning stjórnar – í foreldraráði starfa 7 fulltrúar, í vetur hætti einn og það skarð var ekki fyllt. Því hafa einungis 6 starfað seinni hluta síðasta tímabils. Þrír af þeim sex meðlimum stjórnar foreldraráðs á síðasta ári munu gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni og því vantar a.m.k. þrjá nýja stjórnarmenn. Gott væri ef þeir foreldrar sem hafa hug á að gefa kost á sér til setu í stjórn foreldraráðs mundu láta vita með því að senda tölvupóst á netfangið gerplaforeldrarad@gmail.com.
- Skipun umsjónarmanna – Skipa þarf umsjónarmenn fyrir alla keppnishópa. Hlutverk þeirra er einkum að skipuleggja 1-2 félagslega viðburði fyrir hópinn, aðstoða við undirbúning og framkvæmd keppnis- og æfingaferða og að vera tengiliður foreldra við þjálfara.
- Skipun sjoppu- og fjáröflunarnefnda – Hluti af meðlimum beggja nefnda munu láta af störfum og því vantar nýja nefndarmenn.
Að þessu afgreiddu gefst okkur foreldrunum svo tækifæri til að ræða saman í góðu tómi, meðal annars um það hvernig við getum gert starf foreldraráðs sem best og öflugast.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.
Bestu kveðjur,
Foreldraráð