Ása Inga ráðin framkvæmdastjóri Gerplu
Ása Inga Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins Gerplu.
Ása Inga er fædd árið 1982 og hefur verið starfsmanna- og þjónustustjóri Gerplu ásamt því að hafa verið deildarstjóri hjá félaginu til fjölda ára. Þá hefur Ása verið þjálfari hjá félaginu og þjálfaði m.a. Evrópu- og Norðurlandameistara í hópfimleikum.
Ása Inga lauk B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 2007 og útskrifast í júní með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Tæplega 30 manns sóttu um starfið en Capacent mat hæfni umsækjenda og aðstoðaði stjórn Gerplu við ráðningarferlið. Ása tekur við starfinu af Auði Ingu Þorsteinsdóttur sem gegnt hefur því síðastliðin 9 ár. Ása og Auður eru systur eins og margir Gerplufélagar vita og óskar stjórn Gerplu Ásu velkomna til starfa um leið og Auði er þakkað fyrir hennar störf.