Bikarmótið í 5.-4.þrepi
Bikarmótið í 5.-4.þrepi
Um helgina fór fram Bikarmót íslenska fimleikastigans í fjórða og fimmta þrepi pilta og stúlkna. Mótið var haldið á tveim stöðum að þessu sinni. Annars vegar í Íþróttamiðstöðinni Björk Hafnarfirði og hins vegar í nýju fimleikahúsi Fjölnis í Egilshöllinni Grafarholti.
Í piltaflokki var keppt í Íþróttamiðstöðinni Björk Hafnarfirði. Í fyrsta hluta var keppt í 5.þrepi pilta og mættu hvorki fleiri né færri en níu lið til leiks frá fimm íþróttafélögum. Gerpla tefldi fram þrem liðum í fimmta þrepi og stóðu keppendur í öllum þrem liðunum sig með miklum sóma. Keppnin var hörð og mikið jafnræði með liðum. Gerpla lið 1 hafnaði í fjórða sæti.
Á Sunnudag var keppt í fjórða þrepi pilta og tefldi Gerpla fram tveim liðum. Þar stóðu keppendur í báðum liðum sig mjög vel. Gerpla lið 1 gerði sér lítið fyrir og sigraði keppnina með 324.650 stigum. Í öðru sæti varð svo lið Ármenninga og í þriðja sæti varð lið Fimak frá Akureyri.
Það er ljóst að eftir keppni helgarinnar að framtíðin er björt í yngri flokkum félagsins í piltaflokki.
Í 5.þrepi stúlka voru 3 lið frá Gerplu og keppst var í A,B og C deild. A lið Gerplu endaði í 8.sæti með 290.853 stig, B liðið endaði í 4.sæti með 289.839 stig og C lið Gerplu endaði í 2 sæti með 284.905 stig.
Í 4.þrepi var Gerpla með 4 lið og keppt var í A og B deild. A lið Gerplu gerði sér lítið fyrir og sigraði stórglæsilega með 302.436 stig. B liðið frá Gerplu áttu einnig glæsilegt mót og röðuð sér í efstu sætin. B1 sigraði með 292.368 stig, B2 var í 2 sæti með 291.952 stig og B3 liðið endaði í 4 sæti með 283.085 aðeins 0,05 stigum frá því að vera í 3 sæti. Virklega flottur árangur hjá þessum liðum.
Áfram við, Áfram Gerpla!
Hér eru myndir af vinningshöfunum 🙂