Óskilamunir úr blá og græna bílnum fara í Kórinn – Óskilamunir úr rauða bílnum fara í Gerplu (Versölum).
Akstur frístundabílsins hefst fimmtudaginn 2. september 2024
Breytt fyrirkomulag vor 2024:
Undanfarin ár hafa Breiðablik, Gerpla og HK í sameiningu boðið yngstu iðkendum sínum, í 1.-4. bekk, upp á frístundaakstur með stuðningi frá Kópavogsbæ.
Kostnaður við rekstur frístundabíls hefur hækkað verulega og hefur því reynst nauðsynlegt að endurskoða fyrirkomulagið á þessari þjónustu. Til að mæta hækkunum á rekstri frístundabíls var á líðandi haustönn m.a. reynt að draga úr auknum kostnaði með því að fella niður akstur á föstudögum og hafa félögin eftir fremsta megni reynt að aðlaga æfingatíma yngstu iðkenda að því. Þrátt fyrir að akstursdögum hafi verið fækkað hefur kostnaður við rekstur frístundabíls tvöfaldast á undanförnum tveimur árum. Vegna þessara hækkana mun fyrirkomulag á akstursþjónustu breytast frá áramótum með þeim hætti að þeir sem óska eftir að nýta sér frístundaakstur á vorönn 2024 þurfa að skrá iðkendur og greiða fyrir áskrift af frístundaakstri.
Skráning í frístundaakstur fyrir haust 2024 fer fram í Sportabler (Gerpla og HK) og XPS (Breiðablik). Gjald fyrir frístundaakstur er 11.200 kr. fyrir alla vorönnina (eða um 2.000 kr. á mánuði). Foreldrar sem eru með barn sitt í fleiri en einu félagi velja sjálfir hvar þeir færa skráninguna, aðeins þarf að skrá þátttöku í akstur á einum stað. ATH. það er sama gjald í frístundavagninn sama hvenær viðkomandi byrjar að nota þjónustuna á önninni. Ekki er hægt að kaupa stakan mánuð. Ef iðkandi hættir iðkun eftir að tvær vikur eru liðnar af önninni sem um ræðir er hægt að fá gjaldið endurgreitt.
Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn komi upplýsingum til frístundaheimilanna eða skólans ef barnið þeirra á að taka bílinn á æfingu og þá hvaða lit og klukkan hvað. Starfsmenn frístundaheimilanna hafa verið duglegir að fylgja börnunum út á stoppustöð og þegar í bílinn er komið er það starfsmaður hans sem tekur við barninu og aðstoðar það við að fara út á réttum stað.
Mjög gott ef forráðamenn geta verið búnir að fara í gegnum rúntinn með barninu og sýnt því hvar það á að fara út svo það sé öruggara þegar aksturinn fer af stað.
Bílarnir eru þrír og eru merktir með þremur mismunandi litum í framrúðunni. Þannig geta börnin þekkt sína rútu eftir litnum. Hver bíll fer tvær ferðir á dag. Ekki er gert ráð fyrir því að bíllinn aki börnunum til baka á frístundaheimilin að lokinn æfingu og eru börnin því á ábyrgð foreldra eftir að æfingu lýkur. Starfsmenn verða í bílunum til að aðstoða börnin við að fara á réttan æfingastað.
Frístundavagninn er fyrst og fremst hugsaður fyrir börn í 1.-4.bekk.
Við hlökkum til að eiga gott samstarf og vonumst til að vagninn nýtist sem flestum í vetur.