Garpamót 5.-6. nóv
Helgina 5.-6. nóvember fer fram Garpamót Gerplu.
Á mótinu koma fram um 430 keppendur úr grunn- og framhaldsdeild félagsins, sem eru á aldrinum 5-7 ára, og sýna það sem þeir hafa verið að æfa hjá okkur undanfarnar vikur. Að loknu móti fá allir verðlaunapening og viðurkenningaskjal fyrir þátttökuna.
Garpamót er fastur liður hjá okkur í Gerplu og þar öðlast iðkendur mikilvæga reynslu í því að koma fram ásamt því að eiga skemmtilega stund saman. Við hlökkum mikið til að sjá alla en áhorfendur eru hjartanlega velkomnir.