Íslandsmót í þrepum
Íslandsmótið í þrepum fór fram fyrir norðan á Akureyri að þessu sinni um liðna helgi, keppt var í 1.-3. þrepi. Keppendur okkar í Gerplu voru ótrúlega spennt að fara norður að keppa margir hverjir í fyrsta sinn. Umgjörð mótsins til fyrirmyndar og alltaf gaman að koma norður.
Gerpla sendi keppendur í öllum þrepum kvenna og karla. Frábær árangur hjá þeim og margir að bæta sig mikið á milli móta og aðrir með persónulega sigra að ná að keppa aftur eftir erfið meiðsli.
![](https://i2.wp.com/www.gerpla.is/wp-content/uploads/2022/04/B81BDF33-75F8-4225-98EA-5765060C2A4D-1024x1024.jpg?ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.gerpla.is/wp-content/uploads/2022/04/BA974074-7415-43B9-A099-E26CC6BD3E14-1024x855.jpg?ssl=1)
Gerpla eignaðist tvo Íslandsmeistara um helgina, Þá Botond Ferenc Kováts sem keppti í 2. Þrepi og Kára Pálmason sem keppti í 1. Þrepi. Frábær árangur hjá þessum strákum okkar. Einnig fengum við bronsverðlaunahafa í 3. Þrepi pilta var það hann Ármann Andrason sem átti glæsilegt mót.
Stúlkurnar náðu einnig góðum árangri á mótinu í 3. Þrepi voru það Elfa María Reynisdóttir sem fékk silfurverðlaun í flokki 11 ára og yngri og Hekla Tomasdottir Albrigtsen sem fékk bronsverðlaun í 3. Þrepi 13 ára og eldri.
Í 2. Þrepi voru það vinkonurnar Ísabella Róberstdóttir og Sólný Inga Hilmarsdóttir sem röðuðu sér í annað og þriðja sæti í flokki 12 ára og yngri.
Við erum virkilega stolt af öllum okkar keppendum, og óskum þeim, foreldrum og þjálfurum innilega til hamingju með frábært keppnistímabil.