Nýtt líf velur Gerplu konu ársins
Tímaritið Nýtt Líf hefur valið fimleikastúlkurnar í Gerplu sem konur ársins 2010,
en stúlkurnar 15 komu heim með gull um hálsinn eftir þátttöku sína á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum í október síðastliðnum. Þetta er í 20. sinn sem tímaritið útnefnir Konu ársins.
Í tilkynningu frá Nýju Lífi segir að hópurinn sé flott fyrirmynd, ekki einungis fyrir ungu kynslóðina heldur þjóðina í heild sinni. Stúlkurnar hafi sýnt fram á einstaka samvinnu og látið drauma sína rætast.
Gerplustúlkurnar fá að þessu tilefni afhentan verðlaunagrip eftir myndlistarkonuna og hönnuðinn Ingu Elínu.
Sjá einnig: