Stundarskrá sumar 2017
Í dag opnar fyrir skráningar á sumaræfingar. Sumarið er skemmtilegur og mjög mikilvægur tími í fimleikum en 3 mánaða sumarfrí er mjög langur tími frá íþróttinni. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur dagskránna vel og hafa samband á gerpla@gerpla.is eða til viðkomandi deildarstjóra ef þið hafið einhverjar spurningar. Þeim iðkendum sem stendur til boða að sækja skipulagðar sumaræfingar ættu að fá tölvupóst frá okkur um það og í þeim pósti segir til um í hvaða hóp þið eigið að skrá börnin. Verðið sem er uppgefið á stundaskránni hækkar um 10% eftir 20.maí og hvetjum við ykkur því að skrá börnin ykkar sem fyrst ef þau ætla að vera með okkur í sumar.
Hér fyrir neðan er tengill inná stundaskránna.
Við hlökkum til sumarsins með ykkur, starfsfólk Gerplu