Sumarnámskeiðið Fimleika- og íþróttafjör á tvem stöðum í sumar
Breytingar hafa verið gerðar á sumarnámskeiðinu Fimleika- og íþróttafjör.
Nú verða námskeið í báðum húsum Gerplu, Versölum og Vatnsenda. Einnig höfum við fjölgað námskeiðum og bjóðum því upp á námskeið allar vikur í sumar.
Skráning á námskeiðin hefst 1.maí og fer eingöngu fram inni á gerpla.felog.is. Þar er hægt að velja námskeið eftir staðsetningunni Versalir og Vatnsendi.
Athugið að fjöldi barna á hverju námskeiði verður takmarkaður og ef lágmarksfjöldi næst ekki á námskeið gætum við þurft að sameina námskeiðin á einn stað.