Þrír Íslandsmeistartitlar í fjölþraut til Gerplu um helgina í frjálsum æfingum
Íslandsmótið í áhaldafimleikum fór fram í Egilshöll um helgina í umsjón Fjölnis. Frábær árangur hjá okkar fólki sem skilaði inn góðu dagsverki. 12 fjölþrautarverðlaun í boði og 8 þeirra til okkar í Gerplu.
Karlaflokkur
Valgarð Reinhardsson sigraði í sjöunda sinn, í 2. sæti varð Martin Bjarni Guðmundsson og í því þriðja Atli Snær Valgeirsson. Dagur Kári Ólafsson varð í 4. Sæti, Sigurður Ari Stefánsson í 5. sæti og Ágúst Ingi Davíðsson í 6. sæti.
Unglingaflokkur karla
Kári Pálmason varð í 5. sæti, Kári er enn keppandi í drengjaflokki og er því að keppa uppfyrir sig og er þetta virkilega flottur árangur hjá honum.
Kvennaflokkur
Thelma Aðalsteinsdóttir sigraði annað árið í röð og í 2. sæti varð Hildur Maja Guðmundsdóttir. Agnes Suto varð í 4. sæti. Dagný Björt Axelsdóttir keppti á einu áhaldi og var ótrúlega nálægt úrslitum á slá.
Unglingaflokkur kvenna
Lilja Katrín Gunnarsdóttir varð Íslandsmeistari, í 2. sæti varð Kristjana Ósk Ólafsdóttir og í 3. sæti Rakel Sara Pétursdóttir. Berglind Edda Birkisdóttir í 10. sæti, Bára Björk Jóelsdóttir í 11. sæti, Hekla Hákonardóttir í 12. Sæti og Ísabella Maack Róbertsdóttir í 15. sæti. Sól Lilja Sigurðardóttir keppti á 2 áhöldum.
Úrslit á einstökum áhöldum, 12 Íslandsmeistaratitlar til iðkenda Gerplu
Keppt var til úrslita á áhöldum á sunnudaginn. Frábær árangur hjá okkar fólki sem raðaði inn verðlaunum á einstökum áhöldum.
Í karlaflokki eignuðumst við Íslandsmeistara á fimm áhöldum af sex mögulegum. 17 verðlaun af 18 mögulegum í heildina.
Íslandsmeistari á gólfi – Jónas Ingi Þórisson
2. sæti Martin Bjarni Guðmundsson
3. sæti Ágúst Ingi Davíðsson
Íslandsmeistari á bogahesti – Arnþór Daði Jónasson
2. sæti Valgarð Reinhardsson
3. sæti Atli Snær Valgeirsson
Hringir
2. sæti Valgarð Reinhardsson
3. sæti Ágúst Ingi Davíðsson
Íslandsmeistari á stökki – Martin Bjarni Guðmundsson
2. sæti Atli Snær Valgeirsson
3. sæti Jónas Ingi Þórisson
Íslandsmeistari á tvíslá – Valgarð Reinhardsson
2. sæti Martin Bjarni Guðmundsson
3. sæti Sigurður Ari Stefánsson
Íslandsmeistari á svifrá – Valgarð Reinhardsson
2. sæti Martin Bjarni Guðmundsson
3. sæti Sigurður Ari Stefánsson
Í unglingaflokki karla áttum við einn keppanda. Kári Pálmason komst í úrslit á fjórum áhöldum. Hann keppti á gólfi, stökki, tvíslá og svifrá.
Kári gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari á svifrá með frábærum æfingum, hann varð í 5. sæti á tvíslá og í fjórða sæti og í 4. sæti, ekki langt frá verðlaunapallinum á gólfi og stökki.
Í kvennaflokki eignuðumst við Íslandsmeistara á tveim áhöldum af fjórum mögulegum. 8 verðlaun af 12 mögulegum.
Íslandsmeistari á stökki – Hildur Maja Guðmundsdóttir
2. sæti Agnes Suto
Tvíslá
2. sæti Thelma Aðalsteinsdóttir
3. sæti Agnes Suto
Íslandsmeistari á jafnvægisslá – Thelma Aðalsteinsdóttir
3. sæti Hildur Maja Guðmundsdóttir
Gólf
2. sæti Hildur Maja Guðmundsdóttir
3. sæti Thelma Aðalsteinsdóttir
Í unglingaflokki kvenna eignuðumst við fjóra Íslandsmeistaratitla af fjórum mögulegum. 10 verðlaun af 12 mögulegum
Íslandsmeistari á stökki – Lilja Katrín Gunnarsdóttir
3. sæti Rakel Sara Pétursdóttir
Íslandsmeistari á tvíslá – Lilja Katrín Gunnarsdóttir
2. sæti Kristjana Ósk Ólafsdóttir
3. sæti Rakel Sara Pétursdóttir
Íslandsmeistari á jafnvægisslá – Lilja Katrín Gunnarsdóttir
2. sæti Rakel Sara Pétursdóttir
Íslandsmeistarar á gólfi – Kristjana Ósk Ólafsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir
3. sæti Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Frábær árangur hjá okkar fólki, til hamingju keppendur og þjálfarar með helgina og alla vinnuna sem þið hafið lagt á ykkur, við erum virkilega stolt af ykkur
Áfram Gerpla!