Toppmótið í hópfimleikum 2017
Fyrsta hópfimleikamót vetrarins í meistaraflokki fer fram í Versölum laugardaginn 18.febrúar. Keppt verður í kvennaflokki og flokki blandaðra liða. Mótið er lítið í sniðum en aðeins eru fjögur lið skráð til keppni. Mótið hefst stundvíslega klukkan 18:00 en áætluð mótslok eru klukkan 19:00. Við hvetjum ykkur til að að koma í stúkuna og styðja við bakið á liðunum.